Kolbeinn sendir frá sér yfirlýsingu

Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á undanförnum árum hef ég átt í erfiðleikum, verið andlega á slæmum stað, mikið meiddur og framtíð ferils míns sem knattspyrnumanns í mikilli hættu. Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegðaði mér með óviðeigandi hætti.“

Á þessum orðum hefst yfirlýsing landsliðsmannsins Kolbeins Sigþórssonar, sem umboðsmaður hans og lögmaður hafa komið á framfæri við fjölmiðla.

Í yfirlýsingunni víkur Kolbeinn að því að Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hafi stigið fram og lýst „sinni upplifun af atviki á skemmtistaðnum B5 haustið 2017“.

Vorið 2018 hafi Kolbeinn síðan hitt Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar, og hlustað á þeirra upplifun.   

„Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsökunar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta,“ segir Kolbeinn.

Rænd sinni sátt

„Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi.    

Með þessu var málinu lokið af okkar hálfu. KSÍ var upplýst um framvindu sáttaviðræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skilning á því,“ segir Kolbeinn.

„Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn markvisst að vinna í mínum málum.“

Yfirlýsing Kolbeins í heild sinni:

„Á undanförnum árum hef ég átt í erfiðleikum, verið andlega á slæmum stað, mikið meiddur og framtíð ferils míns sem knattspyrnumanns í mikilli hættu.Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegðaði mér með óviðeigandi hætti. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur stigið fram og lýst sinni upplifun af atviki á skemmtistaðnum B5 haustið 2017. Vorið 2018 hitti ég Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar og hlustaði á þeirra upplifun.   

Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsökunar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi.

Með þessu var málinu lokið af okkar hálfu. KSÍ var upplýst um framvindu sáttaviðræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skilning á því.

Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn markvisst að vinna í mínum málum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert