Maður í haldi vegna kynferðisafbrots í Eyjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Sigurður Bogi

Maður er í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum vegna gruns um kynferðisbrot gegn konu í heimahúsi í nótt. Bæði eru þau á þrítugsaldri.

Þetta staðfestir Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, í samtali við mbl.is. Vísir greindi fyrst frá. 

Konan var flutt til Reykjavíkur í sjúkraflugi á neyðarmóttöku Landspítalans. Jóhannes segir það vera eðlilegt þegar um kynferðisafbrot er að ræða. 

Hann sagði þann grunaða hafa verið handtekinn fljótlega eftir að tilkynningin barst lögreglu. Brotaþoli hafi sjálf tilkynnt atburðinn. 

Lögregla getur ekki veitt nánari upplýsingar um málið að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert