Óbreytt staða á Landspítalanum

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Sigurður Bogi

10 sjúklingar liggja inni á  Landspítala vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær. Áfram er enginn á gjörgæslu með Covid-19.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum frá Landspítalanum.

Alls hafa 95 sjúklingar lagst inn á Landspítala með Covid-19 í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Sextán hafa þurft að leggjast inn á gjörgæslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert