Stýrisbúnaðurinn gekk inn í læri mannsins

Hjólreiðar í sólinni. Mynd úr safni.
Hjólreiðar í sólinni. Mynd úr safni. mbl.is/Hari

Lögreglan fékk síðdegis tilkynningu um slys sem orðið hafði í Vesturhlíð.

Þar hafði hjólreiðamaður fallið í lausamöl með þeim afleiðingum að stýrisbúnaður hjólsins gekk inn í læri hans.

Frá þessu greinir í dagbók lögreglu. Segir þar að fjarlægja hafi þurft stýrisbúnaðinn af hjólinu áður en unnt var að flytja manninn undir læknishendur á slysadeild. Mun hann vera á batavegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert