„Undanfarið hefur gengið yfir umræða á samfélagsmiðlum eftir ummæli sem ég lét falla í hlaðvarpsþætti. Ég baðst strax afsökunar á ummælum mínum og sá á eftir þeim, mér urðu á mistök.“
Þetta skrifar Hugi Halldórsson, einn þeirra sem heldur úti knattspyrnuhlaðvarpinu The Mike Show, í afsökunarbeiðni sem hann birti á Twitter í dag.
„Ég hef alist upp í og verið viðloðinn þennan eitraða karlmennskuheim fótboltans allt mitt líf,“ segir Hugi og segist ekki hafa gert sér grein fyrir því þá að hann hafi samofist menningunni sem þar ríkir.
Bútar úr þættinum hafa flakkað um samfélagsmiðla þar sem fólk gagnrýnir harðlega þau orð sem stjórnendur þáttarins láta út úr sér varðandi mál KSÍ sem hafa verið í brennidepli síðustu daga.
„Klárum þetta á þessu svari KSÍ við einhverri konu, já ég var næstum búinn að missa eitthvað verr út úr mér, bara einhver kona með lyklaborð sem að veit ekkert um íþróttir eða ég held allavega ekki,“ sagði Hugi meðal annars í þættinum.
Var þá þá átt við Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur, framhaldsskólakennara og formann jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, sem hafði skrifað pistil um þöggun ofbeldismála innan KSÍ.
Einhver ömurlegasti afkimi eitraðrar fótboltakarlmennsku hér á landi er hlaðvarpið The Mike Show. Þar mæta Höfðinginn og Mækarinn og Bondinn (já, í alvöru) og tala um alls konar. Hér eru valin brot af þeim að drulla yfir Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur, í þætti frá 20. ágúst pic.twitter.com/IWftA1xsEG
— Hemúllinn (@arnarsnaeberg) September 2, 2021
— Hugi Halldórsson (@hugihall) September 2, 2021