Hlaup hafið í Vestari-Jökulsá

Vestari-Jökulsá rennur saman við Austari-Jökulsá og mynda þær Héraðsvötn.
Vestari-Jökulsá rennur saman við Austari-Jökulsá og mynda þær Héraðsvötn. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Hlaup er hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði en upptakakvíslar hennar koma undan Hofsjökli norðanverðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra.

Ekki er reiknað með hættu af hlaupinu en líklegt er að vaxi nokkuð í Héraðsvötnum og að þau litist af aurburði. Einhver brennisteinslykt getur fylgt hlaupinu og rétt að fólk dvelji ekki við ána á meðan á hlaupinu stendur.

Vestari-Jökulsá rennur saman við Austari-Jökulsá um átta kílómetra sunnan við mynni Norðurárdals (á móts við Silfrastaði) og mynda þær saman Héraðsvötn. Þjóðvegur 1 milli Varmahlíðar og Akureyrar liggur með Héraðsvötnum á kafla.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert