Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fór allt vel fram í Herjólfsdal í gær þar sem fjöldi fólks kom saman þegar kveikt var á þjóðhátíðarbrennunni á Fjósakletti.
Spurð hvort fjöldi hafi verið meiri en samkomutakmarkanir sem eru nú í gildi kveða á um segir lögreglan að dalurinn sé stór og fólk hafi verið á víð og dreif um hann og haldið almennum fjarlægðarmörkum.
„Lögreglan var á staðnum og allt fór mjög vel fram. Það voru nánast allir farnir úr Herjólfsdalnum klukkan 10 um kvöldið.“