Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði um stöðu Covid-faraldursins til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í morgun.
Þetta segir Svandís í samtali við RÚV.
Hún segist eiga von á að frekar tilslakanir verði kynntar á þriðjudaginn eftir ríkisstjórnarfund.
Núgildandi reglugerð um takmörkun á samkomum gilda til og með 17. september.
Ekki náðist í heilbrigðisráðherra við vinnslu fréttarinnar.