26 greindust innanlands – helmingur í sóttkví

Frá skimun vegna kórónuveirunnar á Suðurlandsbraut.
Frá skimun vegna kórónuveirunnar á Suðurlandsbraut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

26 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 13 voru í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á Covid.is. 387 eru núna í einangrun, sem eru 10 færri en í gær. 796 eru í sóttkví, sem er fjölgun um 20 á milli daga. 

Rétt eins og í gær eru sex á sjúkrahúsi með Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu. 

2.365 sýni tekin

Tekin voru 2.365 sýni, þar af 1.327 vegna landamæraskimunar. 

Sjö smit greindust á landamærunum, þar af var einn með mótefni og beðið er eftir mótefnamælingu í einu tilviki. 

Alls eru 219 í einangrun á höfuðborgarsvæðinu. Sem fyrr eru næstflestir í einangrun á Suðurnesjum, eða 63.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert