Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðið allsherjarrýmingu við gosstöðvarnar eftir að mikið hraun fór að streyma á ný niður í Nátthaga, en þar fara flestir ferðamenn um sem koma til að skoða gosið. Hafa björgunarsveitir verið kallaðar út vegna þessa.
Sigurður Bergmann, vettvangsstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, staðfestir við mbl.is að heljarinnar hraun hafi farið að renna á ný niður í Nátthaga. „Þar er aðal fjöldinn“ segir hann um fólk á svæðinu og bendir á að færri hafi farið undanfarið um Langahrygg.
Spurður hversu margir séu á svæðinu segir hann að það sé talsverður fjöldi.
Uppfært: Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: „Lokað hefur verið fyrir umferð að gosstöðvunum vegna hraunflæðis. Er það gert af öryggisástæðum. Viðbragðsaðilar þurfa nú svigrúm til að meta að nýju aðstæður.“
Sjá má vefmyndavél mbl.is í Nátthaga hér.