Farsóttarhúsinu á Fosshóteli í Reykjavík hefur verið lokað þar sem smitum hefur farið fækkandi en enn dvelur 71 gestur í tveimur farsóttarhúsum í Reykjavík og einu á Akureyri. Þetta staðfestir Gylfi Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa, í samtali við mbl.is.
„Nú er það þannig að smitum fer fækkandi sem betur fer. Það eru aðeins færri ferðamenn að koma til landsins, þótt þeir séu enn töluvert margir,“ segir Gylfi.
Hann útilokar þó ekki að farsóttarhúsið opni aftur.
„Fyrst smitum er að fækka þá getum við aðeins dregið saman seglin,“ segir Gylfi en þegar smitum fjölgi þurfi hins vegar að grípa til ráðstafana.
Alls greindust 26 smit innanlands í gær, helmingur þeirra bólusettur og 18 greindust í sóttkví. 336 eru nú í einangrun með veiruna, 773 í sóttkví og 377 í skimunarsóttkví.
Sex eru inniliggjandi á Landspítalanum með veirusmit, fjórir á bráðalegudeildum og tveir á gjörgæslu og í öndunarvél.