Slydda fellur á Akureyri og snjór til fjalla. Þetta staðfestir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við mbl.is.
Vetur konungur minnti hressilega á sig í morgunsárið á Akureyri en hitastig þar hefur mælst 0 gráður í morgun. Veðurfræðingur útilokar ekki að hitinn fari niður fyrir frostmark en telur það ekki líklegt.
„Þetta er ennþá í gangi, það er náttúrulega hríðarviðvörun á Vestfjörðum í gildi og það kólnaði talsvert með þessari lægð sem gengur þarna yfir,“ segir veðurfræðingur.
Spurður hvort snjókoma sé í spilunum telur veðurfræðingur það ólíklegt. „Núna eftir sem líða tekur á daginn þá hlýnar mjög skarpt þegar það hvessir á norðanverðu landinu. Svo kólnar aftur í nótt.“
Enn er þó von á áframhaldandi slyddu á láglendi og snjó og éljagangi á fjallvegum.