Búin að rýma nokkrar íbúðir vegna stíflu í Sauðá

Frá Sauðárkróki í dag.
Frá Sauðárkróki í dag. mbl.is/Björn Björnsson

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit vaktar Sauðá gaumgæfilega eftir að krapstífla myndaðist í henni í dag. Nokkrar íbúðir hafa þegar verið rýmdar auk þess að vegum hefur verið lokað. 

Hafdís Einarsdóttir formaður Björgunarsveitar Skagfirðingasveitar segir daginn annars hafa verið nokkuð rólegan hjá sveitinni: „Við höfum nú ekki fengið mörg verkefni utan þessa, við vorum beðin um að losa tvo bíla en höfum annars bara verið hérna með vöktunarpóst við Sauðá.“

Stífluð í fimm klukkustundir

Hún segir ána hafa verið stíflaða í fimm klukkustundir en sveitin leggi brátt af stað í skoðunarferð á snjóbílum meðfram ánni. „Við erum bara að fara að græja það, finna stífluna og átta okkur á umfanginu fyrir myrkur.“

Þótt áin sé ekki straumhörð bendir Hafdís á að töluvert vatnsmagn geti safnast upp á fimm klukkustundum: „Við höfum varann á og erum að undirbúa okkur fyrir þó nokkurt flóð. Nokkrir vegir voru lokaðir af í dag og íbúðir á jarðhæðum í blokkum rýmdar.“

Íbúar þeirra húsakynna sem voru rýmd eiga allir önnur hús að venda, að sögn Hafdísar, svo engin þörf var á því að setja upp sérstakar miðstöðvar fyrir þá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert