Endurtalningu er lokið í Suðurkjördæmi og leiddi hún í ljós sömu niðurstöðu og fyrri talning upp á atkvæði. Þetta staðfestir Þórir Haraldsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi.
Mun hún því ekki koma til með að hafa nein áhrif á niðurstöður kosninga í Suðurkjördæminu og því engar frekari hræringar á skipun þingmanna, líkt og gerðist eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi.
Endurtalningin tók fimm klukkustundir en hún hófst klukkan sjö í kvöld og lauk á miðnætti.