Smit sem ná inn í flesta grunnskóla á Akureyri

Lögreglan hvetur foreldra til að takmarka samskipti barna þeirra við …
Lögreglan hvetur foreldra til að takmarka samskipti barna þeirra við önnur börn. mbl.is/Sigurður Bogi

Í vikunni hafa greinst ný smit á Akureyri og hafa þau tengst inn í grunnskóla bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

„Í dag var fjöldi sýna tekin og í ljós hefur komið að staðfest eru a.m.k. 14 ný smit, og þau flest hjá aðilum á grunnskólaaldri. Verið er að vinna að rakningu í þessum tilfellum,“ segir í tilkynningunni.

Lögreglan hvetur foreldra til að takmarka samskipti barna þeirra við önnur börn.

„Þessi smit ná inn í flesta grunnskólana og hvetjum við foreldra að halda börnum sínum til hlés í samskiptum við önnur börn á meðan rakning fer fram og yfirsýn næst, á það einnig við um íþróttaæfingar. Jafnframt hvetjum við fólk til að skrá sig og börn sín í sýnatöku finni það til einkenna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert