39 smit í gær

Sýnataka við Suðurlandsbraut.
Sýnataka við Suðurlandsbraut. mbl.is/Árni Sæberg

Alls greindust 39 kórónuveirusmit innanlands í gær, samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Daginn áður greindust 16 smit innanlands.

Þá eru nú 912 í sóttkví og 359 í einangrun. Í gær voru 807 í sóttkví og 342 í einangrun. 

Níu eru nú alls á sjúkrahúsi og einn á gjörgæslu en í gær voru alls átta á sjúkrahúsi með kórónuveiruna og þar af einn á gjörgæslu. 

Nýgengi innanlandssmita er því nú 112,1 en það var 108,3 í gær. 

Fréttin verður uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert