Óhreinsað skólp rennur út í sjó vegna bilunar

Skólp­ dælist nú út í sjó vegna bilunar í hreinsistöð.
Skólp­ dælist nú út í sjó vegna bilunar í hreinsistöð. Morgunblaðið/Golli

Bilun hefur komið upp í hreinsistöð við Ánanaust og fer því óhreinsað skólp út í sjó. Í tilkynningu frá Veitum segir að unnið sé að viðgerð og er vonast til þess að henni ljúki í kvöld.

Í tilkynningunni segir að sjáanlegt rusl ætti að vera í minna lagi þar sem að skólpið, sem fer í sjó um neyðarlúgur, rennur í gegnum síur. Fjörur verða þó vaktaðar og hreinsaðar ef á þarf að halda næstu daga.

Hægt er að fylgjast með stöðu á neyðarlúgum fráveitu hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert