Ekki meiri kvalir í helvíti

Finni geymir ýmsa muni og minjagripi í uppáhaldsherbergi sínu sem …
Finni geymir ýmsa muni og minjagripi í uppáhaldsherbergi sínu sem hann kallar veiðiherbergið. Finni misst handlegg í slysi þegar hann var um fertugt, en lét það ekki stoppa sig í lífinu. mbl.is/Ásdís

Á Sauðárkróki býr Sigurfinnur Jónsson, kominn á tíræðisaldur en vel ern. Finni, eins og hann er ávallt kallaður, hefur marga fjöruna sopið á langri ævi og margsinnis sloppið með skrekkinn. Reyndar segist Finni aldrei finna til hræðslu, en við komum að því síðar. Hann býður mér til sætis í uppáhaldsherbergi sínu sem hann kallar veiðiherbergið. Þar inni má finna ótal gripi, tæki og tól tengd veiðimennsku. Bækurnar í hillunum eru margar um rjúpur eða ævintýramennsku og háskafarir. Í horninu er rammlæstur byssuskápur, á vegg hangir skápur fullur af skotum og tveir hausar af villisvínum hanga brosandi yfir blaðamanni þar sem hann sýpur á kaffi úr postulínsbolla.

Veiðiherbergið er afar skemmtilegt og ber vott um aðaláhugamálið, rjúpnaveiði.
Veiðiherbergið er afar skemmtilegt og ber vott um aðaláhugamálið, rjúpnaveiði. mbl.is/Ásdís

Finni sest í sófann á móti mér og setur sig í sögumannsstellingar. Hann strýkur á sér gervihandlegginn og byrjar á að tala um helsta áhugamálið, rjúpnaveiðar. Það verður blaðamanni fljótt ljóst að hér fer líklega einn mesti skotveiðimaður Íslands, en Finni hefur gengið á rjúpu í 75.

„Ég á kannski heimsmetið, en ég byrjaði um þrettán ára gamall,“ segir Finni sem er í dag 91 árs.

Við ræðum fleira en ástríðu hans fyrir skotveiði, því Finni hefur lent í lífsháska oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Svo oft hefur hann komist í hann krappan að skrifuð var um hann bók árið 1999, rituð af sveitunga hans, Árna Gunnarssyni. Bókin nefnist Háspenna-lífshætta.

Hugsaði bara um að lifa af

Finni er ættaður af Reykjaströndinni en hefur lengst af búið á Sauðárkróki. Hann stundaði sveitastörf sem barn og unglingur og fór svo á sjó sautján ára gamall. Eftir áralanga sjómennsku réð hann sig til Rarik og vann þar sem línumaður, við vélgæslu og á skrifstofu í rúma hálfa öld. Eitt starfa hans var að leggja háspennulínur víða um land.

Hinn 30. maí árið 1973 þegar Finni var 43 ára lenti hann í hræðilegu slysi við vinnu sína.

„Ég meiddi mig þar ansi illa. Ég lenti í háspennustraumi og það brann af mér höndin og fóturinn fór líka illa. Ég var að laga línuna þarna á einum stað og fékk ekki að taka strauminn af, sem var tómt rugl. Ég var í belti en datt úr staurnum og hékk þar, snerist og missti annan skóinn og greip þá með vinstri hendinni í vírinn.“

Ellefu þúsund volta háspennustraumur fór í gegnum líkama hans og er kraftaverk að Finni lifði það af.

Það hlýtur að hafa verið ansi vont!

„Já, ég held að þetta sé versti bruni sem hægt er að lenda í, hann fer alveg í gegnum mann. Ég brann líka á hælunum.“

Hvað hugsaðir þú þegar þetta gerðist?

„Ég hugsaði bara um að lifa af. Fingurnir voru eins og klær, það var allt hold farið af þeim. Fótleggurinn brann inn í bein; það skein bara inn í beinið og ég missti fjórtán sentimetra bút af lærinu. Ég komst svo niður með hjálp Sigurðar A. Ólasonar, vinnufélaga míns,“ segir Finni og segist hafa verið fluttur á spítalann á Sauðárkróki.

Ekki hægt að fá meira áfall

„Svo var ég látinn bíða þar eftir áætlunarvél í fimm tíma.“

Varstu ekki að drepast úr verkjum?

 „Ég drapst ekki. En fólk hefur kannski haldið að ég myndi drepast, því ekki var boðið upp á sjúkravél suður sem er mjög sérstakt. Ég var óhemjukvalinn. Það eru ekki meiri kvalir í helvíti, það getur ekki verið. Ég hafði fengið smá morfín á Sauðárkróki en þegar ég kom á Landspítalann sagði læknirinn Árni Björnsson að ég mætti ekki fá morfín. Hann sagði að það myndi drepa mig og sagði að ég hefði ekki mátt fá neitt morfín áður en ég fór í flugið. Svo gat hann ekki tekið handlegginn fyrr en viku seinna því hann treysti mér ekki í aðgerð. Handleggurinn var svo tekinn af og húð grædd á lærið á mér,“ segir Finni og segir áfallið hafa að vonum verið mikið.  

„Ég held að það sé ekki hægt að fá meira áfall. Ég efast um það, nema að missa barnið sitt,” segir Finni, en dóttir hans Elsa lést fyrir tæpu ári, langt fyrir aldur fram.

Óhemjugaman á rjúpu

Finni lá á spítalanum í sex vikur og átti svo að fara á Reykjalund í endurhæfingu. Læknirinn sagði við hann að ef hann gæti gengið upp tröppur mætti hann fara heim, annars ekki. Finni gekk upp tröppurnar og fékk því að fara heim í stað þess að fara á Reykjalund.  

Hér má sjá Finna sem ungan mann, með fjölmargar rjúpur …
Hér má sjá Finna sem ungan mann, með fjölmargar rjúpur sem hann skaut. Hann er áreiðanlega ein mesta rjúpnaskytta Íslands og þótt víðar væri leitað.

„Ég var aðeins orðinn brattur, en hafði upplifað óhemjukvalir, löngu eftir að það var búið að taka af mér höndina. Ég sagðist bara vilja fara heim að skjóta rjúpur. Hann hló nú bara að mér, en það endaði með því að ég fór aldrei á Reykjalund. Ég skaut 182 rjúpur þetta haust, og er þetta erfiðasta haust sem ég hef lifað. Ég datt alltaf því löppin á mér var ómöguleg,“ segir Finni og segist hafa lært upp á nýtt að nota haglabyssu, orðinn einhentur, en hann leggur alltaf byssuna ofan á gervihandlegginn.

„Ég var þá kominn með gervihöndina. Ég veit ekki hvort ég var jafngóð skytta og áður, en það segja þeir sem hafa veitt með mér,“ segir Finni og segir rjúpnaveiðar það skemmtilegasta sem hann veit.

„Það er ekki til erfiðara áhugamál en ég gekk alltaf á fjöll frá veginum þar sem ég lagði bílnum. Ég gekk oft í sjö, átta tíma stanslaust. Ég hafði óhemjugaman af þessu.“

Átján þúsund rjúpur

„Ég er viss um að rjúpan bjargaði mér. Ég hefði aldrei lagt þetta á mig að þjálfa mig svona upp ef ég hefði ekki svona gaman af rjúpnaveiði. Það leið tvisvar yfir mig af kvölum. Ég gekk svo bara áfram þegar ég rankaði við mér. Ég hefði ekki fengið betri endurhæfingu á Reykjalundi. Það er ótrúlegt hvað maður getur gert ef maður leggur allt í það. Það er með ólíkindum.“

Finni fór á eftirlaun sjötugur og er nýhættur að skjóta rjúpur. Nú notar hann tímann til að lesa og segir hann ævintýra- og lífsháskabækur í uppáhaldi, en Finni hefur ávallt verið mikill lestrarhestur.

Finni er reffilegur með haglabyssuna, en hann hélt ótrauður áfram …
Finni er reffilegur með haglabyssuna, en hann hélt ótrauður áfram að skjóta rjúpur eftir að hann fékk gervihandlegg. mbl.is/Ásdís

„Ég skaut rjúpur í 75 ár, í 1.330 ferðum. Ég hef alltaf haldið dagbók og veit að ég hef skotið yfir 18.000 rjúpur,“ segir Finni og segist eiga nákvæmar veiðidagbækur um allar ferðir sínar.

Finni býður blaðamanni til stofu og sýnir honum stóran glerskáp með uppstoppuðum dýrum, þar á meðal rjúpu.

„Þetta er síðasta rjúpan sem ég skaut, árið 2019. Konan mín lét stoppa hana upp.“

Ertu ekki besta rjúpnaskytta landsins?

„Ég get ekki svarað því en ég held að enginn eigi fleiri daga á fjöllum en ég, ég held ekki.“   

Prjónabrókin reddaði mér

Áður en Finni missti höndina lenti hann eitt sinn í bráðum háska, en hann féll niður um vök um hávetur.

 „Ég var á rjúpnaskytteríi og áin var ísilögð, enda sextán stiga frost hér á Króknum. Það var hópur af rjúpum sem flaug yfir ána og ég stoppaði til að skoða þetta. Mér sýndist áin vera frosin og ég labba út á og kem að frosnu krapi. Þá dett ég í gegn og enginn botn. Ég gat gripið í brúnina en þá brotnaði skörin. Ég kastaði byssunni upp á ísinn, en þetta var ný byssa. Það endaði með að ég lagðist flatur við skörina og gat þannig híft mig upp.“

Finni hefur lent í lífsháska margsinnis en segist aldrei hræddur.
Finni hefur lent í lífsháska margsinnis en segist aldrei hræddur. mbl.is/Ásdís

Hélstu að þetta væri þitt síðasta?

 „Nei, nei, ég hélt það ekki neitt. En þarna sá ég hvað gallabuxur voru lélegar; ég hef ekki farið í þær síðan. Saumarnir rifnuðu allir í frostinu. Ég þurfti að labba um fimm hundruð metra frá vökinni að bílnum og þær hrundu bara af. Ég var í prjónabrók og það reddaði mér. Ég hitti þarna karl sem stóð við afleggjara að næsta bæ og hann var að húkka far á Krókinn. Hann sagði mér að ég skyldi passa mig að fá ekki lungnabólgu. Ég sagði honum að ég færi í bað og skipti um föt og svo þyrfti ég að athuga með þessar rjúpur. Hann hélt ég væri vitlaus! En ég fór í bað og önnur föt og fór hinum megin við ána og náði þessum rjúpum rétt fyrir myrkur.“ 

Ítarlegt viðtal er við Finna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins þar sem hann segir frá fleiri ævintýrum og háskaförum. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert