„Þeir bara lulla áfram“ segir Sigþrúður Ármannsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um skjálftana á Reykjanesskaga.
Rétt fyrir klukkan átta í morgun voru komnir um 200 skjálftar frá miðnætti, að sögn Sigþrúðar.
Um hálfníuleytið í gærkvöldi mældist skjálfti sem var um þrír að stærð. „Þannig að þetta heldur áfram af svipuðum krafti og hefur verið,“ segir Sigþrúður og bendir á að stundum sé mínúta á milli skjálfta en stundum aðeins meira. Þá séu þeir enn á 5-6 km dýpi líkt og verið hefur.
Sigþrúður segir enn ekki hægt að segja til um hvað skjálftarnir gætu táknað.
„Menn greinir á um það eins og er. Hvort þetta séu bara hreyfingar í sprungum eða kvika á ferðinni, menn eru ekki sammála,“ segir Sigþrúður.
Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesskaga 27. september og eru upptök skjálftanna skammt frá Keili. Skjálftarnir finnast víða á Reykjanesskaganum og á suðvesturhorninu.