Laminn í höfuðið með kylfu

Lögreglumenn að störfum. Myndin er úr safni.
Lögreglumenn að störfum. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í morgun þar sem aðili var laminn í höfuðið með kylfu.

Árásarmaðurinn var flúinn af vettvangi þegar lögreglan mætti á staðinn.

Málið er í rannsókn, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Einnig var tilkynnt um að fatnaður af karlmanni hefði fundist við Elliðará. Lögreglan fór með dróna á vettvang og er málið í skoðun.

Tilkynnt var um mann í annarlegu ástandi í Kópavogi og var honum ekið heim til sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert