Steinar Ingi Kolbeins
Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 mældist klukkan rétt rúmlega korter yfir sjö í morgun. Skjálftinn varð 1,3 kílómetra suðsuðvestur af Keili. Um er að ræða annan skjálftann sem mælist yfir þrír að stærð frá miðnætti á svæðinu.
Eins og mbl.is greindi frá í morgun mun Veðurstofa Íslands funda með fulltrúum almannavarna í dag og hefst fundurinn klukkan 14. Þó er ekki um að ræða fund vísindaráðs almannavarna heldur „hefðbundinn samráðsfund“, segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Þá segir Lovísa að „ekki megi búast við neinum nýjum upplýsingum í raun“.
Vænta má næstu gervitunglamynda eftir tvo daga en samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir er engin sjáanleg kvikusöfnun eða ris. „Skjálftarnir eru á það miklu dýpi að ekkert sést eins og er.“
Þrátt fyrir að ekkert ris sé sjáanlegt segir Lovísa umtalið innanhúss á Veðurstofunni vera á þeim nótunum að „líklega sé um að ræða kvikusöfnun“. Þó liggi engin staðfesting fyrir að svo stöddu.