Nýtt smáforrit fyrir viðburðahaldara

Mynd/Stjórnarráðið

Embætti landlæknis hefur gefið út smáforritið Skanna C-19 sem er sérstaklega ætlað til að auðvelda þeim sem standa fyrir fjölmennum viðburðum að sannprófa gildi vottorða um neikvæða niðurstöðu úr skimun fyrir Covid-19 (PCR- og hraðpróf) á einfaldan og fljótvirkan hátt.

Skanni C-19 er sérstaklega hannað til að auðvelda dyravörðum og öðrum sem sinna gæslu fyrir viðburði að sannprófa gildi vottorða. Skanni C-19 les QR-kóða vottorðsins, hvort sem er af skjá eða af pappír, og staðfestir hvort vottorðið sé gilt eða ekki.

Getur lesið vottorð frá 43 löndum

Ef vottorðið er gilt þá birtist grænn flötur á skjáinn, en annars rauður flötur. Skanni C-19 les einnig nafn og fæðingardag vottorðshafans þannig að hægt sé að tengja vottorðshafa við önnur persónuskilríki.

Öll Covdi-19 vottorð sem gefin eru út hér á landi með QR-kóða eru samræmd við evrópsku EU Digital covid-19 Certificate (EU DCC) vottorðin. Skanni C-19 mun því geta lesið Covid-19 vottorð frá þeim löndum sem gefa út EU DCC vottorð, en nú eru þau orðin 43 talsins.

Skanni C-19 er í boði ókeypis í smáforritaverslunum Play Store hjá Google og App Store hjá Apple.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert