Embætti landlæknis hefur gefið út smáforritið Skanna C-19 sem er sérstaklega ætlað til að auðvelda þeim sem standa fyrir fjölmennum viðburðum að sannprófa gildi vottorða um neikvæða niðurstöðu úr skimun fyrir Covid-19 (PCR- og hraðpróf) á einfaldan og fljótvirkan hátt.
Skanni C-19 er sérstaklega hannað til að auðvelda dyravörðum og öðrum sem sinna gæslu fyrir viðburði að sannprófa gildi vottorða. Skanni C-19 les QR-kóða vottorðsins, hvort sem er af skjá eða af pappír, og staðfestir hvort vottorðið sé gilt eða ekki.
Ef vottorðið er gilt þá birtist grænn flötur á skjáinn, en annars rauður flötur. Skanni C-19 les einnig nafn og fæðingardag vottorðshafans þannig að hægt sé að tengja vottorðshafa við önnur persónuskilríki.
Öll Covdi-19 vottorð sem gefin eru út hér á landi með QR-kóða eru samræmd við evrópsku EU Digital covid-19 Certificate (EU DCC) vottorðin. Skanni C-19 mun því geta lesið Covid-19 vottorð frá þeim löndum sem gefa út EU DCC vottorð, en nú eru þau orðin 43 talsins.
Skanni C-19 er í boði ókeypis í smáforritaverslunum Play Store hjá Google og App Store hjá Apple.