Friðrik krónprins Danmerkur kom hingað til lands í dag. Hann hóf heimsókn sína á kvöldverði á Bessastöðum í boði forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, og Elizu Reid forsetafrúar. Við tilefnið flutti Guðni gestum á Bessastöðum ræðu á dönsku.
Með prinsinum er tíu manna sendinefnd, sem hingað er komin til þess að ræða samstarf Danmerkur og Íslands á sviði sjálfbærra þróun lausna í orkumálum, eins og segir í tilkynningu frá skrifstofu forseta.
Kvöldverðinn á Bessastöðum sóttu einnig Jeppe Kofod utanríkisráðherra Danmerkur og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra Íslands, Kirsten Geelan, sendiherra Danmerkur á Íslandi, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, auk fulltrúa úr dönsku og íslensku viðskiptalífi.
Á morgun flytur forseti ávarp við setningu fundar dansk-íslensku sendinefndarinnar sem fram fer í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýri. Síðdegis á morgun skoða forseti og Friðrik krónprins saman danska varðskipið HDMS Triton, sem nú liggur við höfn í Reykjavík. Skipið sinnir eftirliti á norðurslóðum, meðal annars í samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands, og fá forseti og krónprinsinn leiðsögn um skipið og störf áhafnar.
Nálgast má nánari dagskrá heimsóknar Friðriks krónprins á vefsíðu dönsku konungsfjölskyldunnar.