Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.
Tilkynning þessa efnis hefur verið birt á vef stjórnarráðsins, en tíu dagar eru síðan greint var frá því að Páll Matthíasson léti af störfum sem forstjóri spítalans.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1.mars á næsta ári, og er umsóknarfrestur til 1. nóvember.
Í tilkynningunni segir að Landspítali sé aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús.
„Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Á Landspítala starfa á sjötta þúsund starfsmenn og er spítalinn einn stærsti vinnustaður landsins.“
Tekið er fram að forstjóri beri ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur. Forstjóri beri ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma séu í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
„Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist honum í starfi.“
Eftirtaldar eru hæfniskröfurnar sem getið er í auglýsingunni:
Þá er sagður kostur að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.