Það voru fjórir getraunaseðlar með 13 rétta síðastliðinn laugardag á enska getraunaseðlinum og fær hver rúmar 700 þúsund krónur í sinn hlut. Einn getraunaseðillinn var húskerfi Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík en félagið hefur verið með öflugt getraunastarf í fjölda ára.
Fram kemur í tilkynningu, að það hafi ekki einvörðungu húskerfið sem fékk 13 rétta heldur átti það sama við einn stuðningsmanna ÍFR. Sá er því rúmum 700 þúsund krónum ríkari fyrir vikið.
Hinir tveir getraunaseðlarnir voru keyptir í félagakerfi Grindavíkur og á sölustað á Ísafirði.