Rebekka Líf Ingadóttir
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segist ekki vita á hverju Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, byggir orð sín um tilhæfulausan hræðsluáróður.
Eins og mbl.is greindi frá um daginn birti Hildur færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún vísar í viðtal við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni á RÚV. Í færslunni segir hún að jarðhræringar, inflúensu og RS-vírus aldrei hafa verið málefnalegar ástæður til takmörkunar á athafnafrelsi fólks og talar um tilhæfulausan hræðsluáróður.
„Ég veit nú ekki á hverju hún byggir það, það er mitt hlutverk að segja frá og vara við hlutum sem geta gerst, túlka þá hluti sem eru í gangi og benda á ákveðna hluti sem gætu farið að valda okkur vandræðum, ég get ekki séð að það sé hræðsluáróður,“ segir Þórólfur í samtali við mbl.is
„Hræðsluáróður er það að maður kemur með eitthvað tilefnislaust eða fer að búa eitthvað til og þetta er ekki frá mér komið, þannig að ég vísa því nú bara aftur heim.“
„Ég held að þeir sem að tala um hræðsluáróður eru kannski ekki alveg með staðreyndir málsins á hreinu, heyrist mér oft á tíðum.“