Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita þrjár milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til Menningarfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands vegna uppsetningar á óperunni La Traviata. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.
Uppsetning óperunnar, sem bæði verður sýnd í Hofi og Eldborg, er samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Menningarfélags Norðurlands.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands mun annast hljómsveitarleik á öllum sýningum, bæði á Akureyri og í Reykjavík. Sýningar verða í Eldborgarsal Hörpu 6. og 7. nóvember nk. og í Hofi á Akureyri 13. og 14. nóvember. Er um að ræða fyrstu óperuna sem sýnd er í Hofi.