Ríkissaksóknari fer nú yfir dóm héraðsdóms Reykjavíkur í Rauðgerðismálinu en ákvörðun um áfrýjun verður tekin þegar þeirri yfirferð lýkur.
Angjelin Sterkaj var dæmdur í 16 ára fangelsi á fimmtudag fyrir að verða Armando Beqirai að bana þann 13. febrúar en hinir sakborningarnir, þau Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coelho Carvalho og Murat Selivrada, voru sýknaðir af kröfum ákæruvaldsins í dóminum sem var kveðinn upp í vikunni.
„Það sem liggur fyrir er að fara yfir dóminn og gögn málsins. Að því loknu verður tekin ákvörðun um það hvort málinu verður áfrýjað,“ hefur Fréttablaðið eftir Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara.
Ríkissaksóknari gæti áfrýjað þeim hluta dómsins er varðar sýknudóm Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coelho Carvalho og Murat Selivrada til Landsréttar.