Á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild 12G á Landspítala hefur nú greinst Covid-19 smit hjá fjórum sjúklingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.
Rakning og skimun stendur yfir meðal sjúklinga, aðstandenda og starfsmanna en ekki er vitað á þessari stundu hvernig smitið barst inn á deildina. Deildin er lokuð fyrir innlögnum og heimsóknum.
Á Landspítala eru enn í gildi reglur um grímuskyldu og fjarlægðartakmörk ásamt persónulegum sóttvörnum. Ættingjar eru beðnir um að koma ekki á spítalann sýni þeir einkenni Covid-19 og grímuskylda gildir um þá.
Um nýliðna helgi var 21 tilvik þar sem fólk með tengsl við Landspítala greindist með sjúkdóminn og krafðist það rakningar og eftir atvikum einangrunar eða sóttkvíar.