Karlmaður sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í ágúst fyrir innflutning á um 1.300 OxyContin-töflum hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi.
Maðurinn var stöðvaður við komuna til landsins í tollinum og fundu tollverðir töflurnar í pakka sem falinn var í nærbuxum mannsins.
Í dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn, sem er pólskur ríkisborgari og hefur ekki gerst sekur um brot hér á landi áður, hafi játað brot sitt skýlaust.
OxyContin er ópíóðalyf og þannig mjög sterkt verkjalyf.