Lögreglan á Suðurlandi handtók í nótt mann vopnaðan boga og örvum á Selfossi. Lögreglu barst tilkynning um manninn klukkan 04:18 en þá var hann á gangi við Tryggvatorg.
„Lögreglumenn fóru á vettvang og fundu manninn fljótlega. Fylgst var með ferðum hans nokkra stund án hans vitneskju en hann síðan handtekinn á Árvegi til móts við Hörðuvelli án mótþróa. Maðurinn lagði niður vopn sín strax og skorað var á hann að gera slíkt,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Maðurinn var síðar færður í fangelsi á Selfossi og bíður þess enn að vera yfirheyrður en samkvæmt tilkynningu lögreglu mun sú yfirheyrsla fara fram „strax og ástand mannsins leyfir.“
Sérsveit ríkislögreglustjóra var sett í viðbragsstöðu og nokkur viðbúnaður viðhafður vegna atviksins.
Lögregla mun ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.