Sveitarfélagið Ölfus hefur ákveðið að ráðast eftir helgi í urðun hvalsins sem rak að í fjörunni við Þorlákshöfn fyrr í vikunni. Er það gert til að gefa áhugasömum færi á að skoða dýrið í blíðunni um helgina.
„Veðurspá er með besta móti og vill Sveitarfélagið Ölfus hvetja íbúa á höfuðborgarsvæðinu og nágrannabyggðum til að gera sér dagamun með því að skoða hvalinn í þessu stórkostlega umhverfi sem svo heppilega vill til að er afar aðgengilegt. Þá er ekki úr vegi að renna við í sundlauginni eftir góðan göngutúr í fjörunni,“ segir í tilkynningu.
Áhugasömum er bent á bílastæði við golfvöllinn en þaðan er örstuttur gangur að hvalnum.