Samið um nýjan Chevening-styrk fyrir námsmenn

Styrkurinn er sérstaklega er ætlaður íslenskum nemendum sem hyggja á …
Styrkurinn er sérstaklega er ætlaður íslenskum nemendum sem hyggja á meistaranám í STEM-greinum, t.d. tækni-, verk- og stærðfræði. AFP

Stjórnvöld á Íslandi og í Bretlandi hafa samið um nýjan Chevening-styrk sem sérstaklega er ætlaður íslenskum nemendum sem hyggja á meistaranám í STEM-greinum, t.d. tækni-, verk- og stærðfræði. Styrkurinn verður í boði frá og með næsta ári. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Styrkurinn er meðal annars tilkominn vegna samstarfs íslenskra stjórnvalda sem fjallað er um í samkomulagi Íslands og Bretlands sem undirritað var í júlí. Í samkomulaginu er einnig kveðið á um að stofnaður verði nýr sjóður til styrktar íslenskum nemendum sem vilja stunda framhaldsnám eða rannsóknir í Bretlandi á öllum fagsviðum. Þá verður settur á fót sérstakur árlegur samráðsvettvangur íslenskra og breskra háskóla- og vísindastofnana. Honum er ætlað að auka og efla rannsóknasamstarf þjóðanna og auðvelda gerð samstarfssamninga vegna skiptináms á milli ríkjanna.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir það brýnt í okkar samfélagi að íslenskum námsmönnum bjóðist fjölbreytt og spennandi tækifæri til frekara náms erlendis. „Við höfum lagt ríka áherslu á áframhaldandi samstarf við Bretland á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar og það gleður mig mjög að þessi styrkur sé í höfn,” segir Lilja.

Viðræður um framtíðarsamband Íslands og Bretlands eftir útgöngu þeirra úr Evrópusambandinu hafi verið mjög umfangsmiklar. Eitt af forgangmálum íslenskra stjórnvalda hafi verið að tryggja að íslenskir námsmenn og fræðafólk hefði áfram greiðan aðgang að breskum háskólum og vísindastofnunum.

Nánar má fræðast um styrkina hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert