Um 600 kórónuveirupróf voru tekin á Selfossi í dag, að stærstum hluta hraðpróf vegna einstaklinga sem eru í smitgát. Löng bílaröð lá frá kjallara Kjarnans á Selfossi í morgun þar sem sýnatakan fer fram, en allt gekk vel fyrir sig.
Þetta kemur fram á vefnum sunnlenska.is.
Þar segir jafnframt, að fjöldi smita hafi aukist á Selfossi síðustu daga og hafi meðal annars komið upp smit í Fjölbrautaskóla Suðurlands, báðum grunnskólunum og hjá handknattleiks- og knattspyrnudeildum Selfoss.
Allt starf hjá handknattleiks- og knattspyrnudeildum Selfoss var fellt niður um helgina sem vildu sýna samfélagslega ábyrgð á meðan rakningarteymið næði utan um málin á Selfossi, segir ennfremur.
Samkvæmt nýjustu tölum á covid.is eru 75 manns í einangrun á Suðurlandi vegna Covid-19 og 221 í sóttkví, en þær tölur eru síðan fyrir helgi.