Það var stálheppinn lottóáskrifandi sem var einn með allar tölur réttar í kvöld og fær fyrir það rúmar 52,9 milljónir í sinn hlut.
Sjö miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmlega 199 þúsund krónur, að því er Getspá greinir frá.
Sex miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver.