58 smit greindust innanlands

Frá skimun á Egilsstöðum.
Frá skimun á Egilsstöðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

58 greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær, þar af voru 32 í sóttkví, eða rúmlega 55%.

Sex smit greindust á landamærunum, að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa almannavarna.

Smitin eru töluvert færri en greindust í gær þegar þau voru 96 talsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert