Spáð er norðan 8 til 15 metrum á sekúndu en norðvestan 13 til 20 á Austfjörðum fram eftir degi. Rigning verður eða slydda norðaustan- og austanlands, en sjókoma í innsveitum.
Él verða á norðvesturlandi en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti verður yfirleitt 0 til 5 stig, mildast við suðurströndina.
Á morgun verður svipað veður og hvessir aftur austast síðdegis og einnig suðaustan Vatnajökuls.