580 milljarðar í grænar fjárfestingar

Sjóðirnir munu meðal annars horfa til verkefna sem nýta jarðvarma.
Sjóðirnir munu meðal annars horfa til verkefna sem nýta jarðvarma. mbl.is/Rax

Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætla að fjárfesta fyrir 4,5 milljarða Bandaríkjadala (um 580 milljarða króna) í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030. Sjóðirnir hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) sem var formlega kynnt í morgun á lofslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fram fer í Glasgow í Skotlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Íslensku lífeyrissjóðirnir bætast með þessu í hóp fjölda norrænna lífeyrissjóða sem hafa gefið út sambærilegar yfirlýsingar á síðustu tveimur árum. Með yfirlýsingunni nú staðfesta íslensku sjóðirnir þrettán vilja til að stórauka grænar fjárfestingar sínar og styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þar er meðal annars horft til ákvæða Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Sjóðirnir munu meðal annars horfa til verkefna sem nýta jarðvarma en einnig er stefnan að styðja við aukna notkun annarra sjálfbærra orkugjafa með það að markmiði að stuðla að aukinni notkun hreinnar orku í samgöngum og atvinnustarfsemi.

Sjóðirnir sem taka þátt í verkefninu eru Almenni lífeyrissjóðurinn, Birta lífeyrissjóður, Brú lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður bankamanna, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífsverk, LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, SL lífeyrissjóður og Stapi lífeyrissjóður.

CIC mun fylgjast með og mæla hvort þátttakendur í verkefninu standi við yfirlýst markmið og birta niðurstöður sínar árlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert