Koparslegið Hús íslenskunnar

Hús íslenskunnar á Melunum.
Hús íslenskunnar á Melunum. mbl.is/sisi

Framkvæmdir við Hús íslenskunnar á Melunum eru í fullum gangi og byrjað er að klæða húsið að utan. Starfsmenn Ístaks unnu að því um helgina að setja koparklæðningu á suðurhluta hússins og tindraði hún í haustblíðunni.

Áfram verður unnið að framkvæmdum við húsið af fullum krafti og verklok eru áætluð sumarið 2023. Hús íslenskunnar mun hýsa fjölbreytta starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar og íslenskudeild Háskólans.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert