Lögðu hald á mikið þýfi á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til þess að gæta þess …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til þess að gæta þess að munir sem keyptir eru á netinu séu ekki illa fengnir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á mikið af ætluðu þýfi í húsnæði á höfuðborgarsvæðinu um helgina, að því er kemur fram í tilkynningu. 

Var húsráðandi handtekinn og leikur grunur um að mununum hafi verið stolið í innbrotum í nýbyggingar í Sunnusmára í Kópavogi í síðustu viku.

„Um er að ræða verkfæri, vaska, krana, sturtusett o.fl. Rannsókn málsins miðar vel, en nú er unnið að því að koma hlutunum aftur í réttar hendur,“ segir í tilkynningu. 

Kaupendum þyki sárt að þurfa að skila

Í tilkynningunni er bent á að eitthvað af hinum illa fengnu munum kunni þegar að hafa verið selt á sölusíðum á netinu.

„En af því tilefni hvetur lögreglan fólk til árvekni þegar keyptir eru hlutir á sölusíðum á netinu, t.d. að seljandi sýni kvittun fyrir vörunni. Of oft gerist það að mati lögreglu að þýfi finnst í fórum kaupenda sem bera við að þeir hafi ekki vitað að varan var stolin, vita ekki nafn seljanda, heimilisfang eða annað sem að gagni má koma við rannsókn málsins, en finnst engu að síður sárgrætilegt og ósanngjarnt að varan sé af þeim tekin og komið í vörslu réttmæts eiganda,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert