Vildu ekki að Sólveig segði af sér

Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar. mbl.is/Hari

Yfirlýsing starfsfólks Eflingar sem sett var fram á föstudaginn var ekki sett fram í þeim tilgangi að lýsa vantrausti eða hrekja nokkurn úr starfi. Var yfirlýsingin hugsuð sem fyrsta skref á leið til lausnar. Þetta segir í tilkynningu frá Eflingu sem undirrituð er af trúnaðarmönnum starfsmanna. 

Það var ekki vilji eða meining starfsmannafundarins á föstudag að formaður félagsins segði af sér. Starfsfólk félagsins hefur unnið af heilum hug samkvæmt þeirri stefnu sem forysta félagsins hefur sett síðustu ár. Fjöldi starfsmanna félagsins starfar hér vegna þeirrar baráttu sem Sólveig hefur háð. Þau vandamál sem starfsfólk ræddi, vildi starfsfólk leysa í samvinnu við yfirmenn,“ segir í tilkynningunni.

Þá er tekið fram að starfsfólkið sé, sem endranær, að vinna fyrir félagsmenn og beri hag þeirra fyrir brjósti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert