Kraftmikil strákastund á Kexinu

Kraftmikil strákastund fer fram á Kex hostel á fimmtudag.
Kraftmikil strákastund fer fram á Kex hostel á fimmtudag. Mynd/mbl.is

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, heldur Kraftmikla strákastund á Kex á morgun, fimmtudaginn 4. nóvember. Þar geta karlmenn sem hafa annað hvort greinst með krabbamein sjálfir eða átt aðstandenda með krabbamein, hist og deilt reynslu sinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni og snertir krabbamein fjöldann allan af aðstandendum þeirra. Það getur verið mjög gott að heyra í öðrum mönnum sem hafa reynsluna og heyra hvernig þeir hafa tæklað hlutina,“ segir í tilkynningunni.

Meðal þeirra sem munu koma og deila reynslu sinni eru Kári Kristján Kristjánsson landsliðsmaður, en hann greindist tvisvar með æxli í bakinu. Pétur Helgason mun segja frá sinni reynslu en konan hans greindist með brjóstakrabbamein. Hjörleifur Stefánsson kemur einnig en konan hans hefur tvívegis greinst með brjóstakrabbamein. Þá mun Arnar Sveinn Geirsson segja frá upplifun sinni eftir að hann missti mömmu sína úr krabbameini.

Matti Osvald Stefánsson, heilsufræðingur og markþjálfi Ljóssins, og Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Krabbameinsfélagsins, munu leiða þennan viðburð.

„Við strákarnir erum svo vanir að fara í gegnum erfiða tíma á hnefanum og tölum ekki um hlutina. Það hins vegar kemur bara niður á okkur og fólkinu í kringum okkur seinna. Því er svo nauðsynlegt að hitta aðra í svipuðum sporum sem að skilja mann og því erum við nú að halda þessa strákastund í fyrsta sinn og vonum að sem flestir nýti sér þetta tækifæri,“ er haft eftir Matta í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert