5,2 milljarða fjárfestingar á skíðasvæðum

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu munu setja 5,2 milljarða í uppbyggingu á …
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu munu setja 5,2 milljarða í uppbyggingu á skíðasvæðinu á næstu árum. mbl.is/Golli

Gert er ráð fyrir 5,2 milljarða króna fjárfestingum í innviðum vegna skíðaiðkunar til ársins 2026, samkvæmt nýju samkomulagi Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um uppbyggingu um skíðasvæða. Þetta kemur fram í tilkynningu. Markmið uppbyggingarinnar er að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir alla hópa skíðaiðkenda.

Er meðal annars gert ráð fyrir því að settar verði upp nýjar stólalyftur í Bláfjöllum, nýrri toglyftu í Kerlingardal, lyftum í Eldborgargili og Skálafelli, auk uppbyggingar á skíðagöngusvæði. Þá er einnig gert ráð fyrir snjóframleiðslu á skíðasvæðunum.

Sérstakur verkefnahópur hefur verið starfræktur á vettvangi SSH til þess m.a. að undirbúa verkefnin og fylgja þeim eftir. Þá hefur verið ráðinn verkefnastjóri sem starfa mun með verkefnahópnum og stjórnendum skíðasvæðisins m.a. til að fylgja eftir samningum, hönnun og framkvæmd ásamt almennu utanumhaldi verkefnisins.

Samninginn undirrituðu Gunnar Einarsson formaður stjórnar SSH og Páll Björgvin …
Samninginn undirrituðu Gunnar Einarsson formaður stjórnar SSH og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH fyrir hönd SSH og Ómar Ívarsson og Ingvar Ívarsson fyrir hönd Doppelmayr á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Í fyrsta áfanga verkefnisins hefur verið samið við Doppelmayr skíðalyftur ehf., sem var lægstbjóðandi í samkeppnisútboði, um kaup og uppsetningu á skíðalyftunum í Bláfjöllum; Gosa, sem áætlað er að verði afhent á árinu 2022, og Drottningu, sem áætlað er að verði afhent á árinu 2023. Undirbúningsvinna vegna framkvæmdanna er þegar hafin og gengur samkvæmt áætlunum. Heildarkostnaður af uppsetningu lyfta og tengdum verkefnum í fyrsta áfanga er áætlaður um 2,4 milljarðar kr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert