16 ára og eldri geta fengið örvunarskammt

Dræm þátttaka hefur verið í örvunarbólusetningu forgangshópa.
Dræm þátttaka hefur verið í örvunarbólusetningu forgangshópa. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sóttvarnarlæknir hefur ákveðið að allir einstaklingar 16 ára og eldri geti fengið örvunarskammt þegar um sex mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu. Heilsugæslan vinnur nú að því að auka afkastagetu í framkvæmd bólusetningar en nóg bóluefni er til eða væntanlegt til að bólusetja alla sem ná þessum tímamótum fyrir áramót. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættis landlæknis.

Er ákvörðunin tekin í ljósi þess að covid-19 tilfellum heldur áfram að fjölga hér á landi og farið er að bera á auknum alvarlegum veikindum, innlögnum og aukinni þörf fyrir gjörgæslumeðferð. Gagnsemi örvunarbólusetningar til að efla varnir bæði einstaklings og samfélagsins sé nú orðin mjög klár.

„Þátttaka hefur verið fremur dræm meðal hópa sem skilgreindir hafa verið í forgangi fyrir þriðja skammt miðað við þátttöku í grunnbólusetningu en á sama tíma eru fleiri og fleiri sem ná sex mánaða markinu og fá ekki örvunarskammt þótt þeir óski eftir því,“ segir í tilkynningunni.

Bóluefni frá Pfizer/BioNTech verður notað í þessar bólusetningar en einnig er til bóluefni frá Moderna sem má nota í þessum tilgangi.

Tekið er fram að til hagræðingar verði lágmarkstíminn frá grunnbólusetningu stilltur á 5 mánuði þar sem mjög margir nái 6 mánaða markinu milli jóla og nýárs. 70 ára og eldri og ónæmisbældir einstaklingar skv. skilmerkjum sóttvarnalæknis óháð aldri geti þó fengið þriðju bólusetninguna þegar 3 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu vegna aukinnar áhættu á ófullnægjandi svari við tveimur bólusetningum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert