Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 15:00. Ástæðan er staða Covid-19 á Íslandi.
Á fundinum fer Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi.
Með Þórólfi á fundinum verða þau Alma Möller landlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarna.