Alvarlegt umferðarslys á Moldhaugnahálsi

Alvarlegt umferðarslys varð á Moldhaugnahálsi í Eyjafirði við árekstur tveggja bifreiða. Ökumenn þeirra beggja voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri ásamt farþega í annarri bifreiðinni. Slysið varð rétt fyrir klukkan 13.

Á Staðarbakka varð bílvelta á svipuðum tíma þar sem gámaflutningabíll valt. Ökumaður og farþegi voru í bifreiðinni en meiðsl þeirra virðast minniháttar, að því er kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert