Norðurlandabúar hvattir til að koma sér úr landi

Eþíópísk kona heldur á skilti með mynd af Abiy Ahmed, …
Eþíópísk kona heldur á skilti með mynd af Abiy Ahmed, forsætisráðherra landins. Ljósmyndin var tekin á útifundi í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, þar sem stjórnarher landsins var sýndur stuðningur. AFP

Vitað er til þess að fjór­ir Íslend­ing­ar séu stadd­ir í Eþíóp­íu, þar sem harðvítug átök geisa nú á milli stjórn­ar­hers lands­ins og upp­reisn­ar­sveita frá Tigray-héraði. 

Sveinn H. Guðmars­son, upp­lýs­inga­full­trúi ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, seg­ir við mbl.is að stjórn­völd á Norður­lönd­un­um hvetji sína borg­ara í Eþíóp­íu til að fara úr landi og koma sér í ör­uggt skjól. 

Það er vegna síversn­andi ástands í land­inu, þar sem upp­reisn­ar­her­ir eru í þann mund að ná höfuðborg lands­ins, Add­is Ababa, á sitt vald.

Sveinn seg­ir að Íslend­ing­ar í Eþíóp­íu hafi ekki sett sig í sam­band við borg­araþjón­ustu ráðuneyt­is­ins og því hafi ís­lensk stjórn­völd ekki verið í beinu sam­bandi við þá. Þeir hafi til­kynnt  sig við danska sendi­ráðið í Eþíóp­íu, sem Íslend­ing­ar á svæðinu hafa áður verið hvatt­ir til þess að gera. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert