Umsóknarfrestur um embætti forstjóra Landspítala rann út á miðnætti. Greint hefur verið frá nöfnum umsækjenda á vef stjórnarráðsins. Þeir eru fjórtán talsins og nöfn þeirra eru eftirfarandi, í stafrófsröð:
- Björn Óli Ö. Hauksson, verkfræðingur
- Elísa Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri
- Gunnar Ágúst Beinteinsson, framkvæmdastjóri mannauðsskrifstofu
- Hákon Hákonarson, læknir
- Jan Triebel, læknir
- Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga
- Kristinn V. Blöndal, ráðgjafi
- Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri
- Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga
- Reynir Arngrímsson, læknir og prófessor
- Runólfur Pálsson, starfandi framkvæmdastjóri meðferðarsviðs
- Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
- Sigurður Erlingsson, viðskiptafræðingur
Heilbrigðisráðherra skipar í embættið til fimm ára frá 1. mars næstkomandi.
Tekið er fram að þriggja manna hæfnisnefnd, sem starfi á grundvelli 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, muni nú meta hæfni umsækjenda.
Starfsreglur nefndarinnar má finna hér.