Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heldur til Parísar á morgun, fimmtudaginn 11. nóvember. Ferðin er farin í tilefni friðarþings, 75 ára afmæli UNESCO og vetnisráðstefnu fransk-íslenska viðskiptaráðsins.
Þann sama dag mun forseti taka þátt í alþjóðlegri friðarráðstefnu, Paris Peace Forum, í boði Emmanuels Macrons, forseta Frakklands. Þá mun forseti eiga tvíhliða fundi með Macron og Maia Sandu, forseta Moldóvu. Síðdegis býður sendiráð Íslands í París til móttöku þar sem forseti flytur erindi um sýnileika smáþjóða í alþjóðastarfi – nauðsyn þess og áskoranir. Loks mun forseti sitja kvöldverð í Elysée-höll, ásamt öðrum þjóðhöfðingjum, í boði Frakklandsforseta.
Að morgni föstudagsins 12. nóvember mun forseti sækja ráðstefnuna Green Hydrogen Symposium sem fram fer í Lúxemborgarhöll. Þar verður fjallað um framþróun á sviði vetnismála í Frakklandi og á Íslandi. Öldungadeild franska þingsins stendur fyrir vetnisráðstefnunni, í samvinnu við fransk-íslenska viðskiptaráðið og sendiráð Íslands í París, og mun forseti flytja erindi um orkuskipti og áskoranir í þeim efnum. Ráðstefnuna sækja einnig fulltrúar franskra orkufyrirtækja og forstjórar Landsvirkjunar, Grænvangs og HS Orku á Íslandi.
Síðdegis á föstudag mun forseti halda á aðalráðstefnu UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem fram fer annað hvert ár og er að þessu sinni haldin samhliða 75 ára afmælishátíð stofnunarinnar. Þar mun hann flytja stutt ávarp á aðalráðstefnunni, en Ísland er nú í framboði fyrir hönd Norðurlandanna til framkvæmdastjórnar UNESCO árin 2021–2025.
Á vettvangi afmælisviðburðar UNESCO mun forseti eiga tvíhliða fundi með Alar Karis, nýkjörnum forseta Eistlands, og Salome Zourabichvili, forseta Georgíu.